Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 07. október 2019 19:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fleiri meiðsli hjá United - Greenwood dregur sig úr U21 hópi Englendinga
Mynd: Getty Images
Mason Greenwood, átján ára framherji Manchester United, hefur dregið sig úr U21 árs landsliðshópi Englands.

Liðið var fyrir án þeirra; Anthony Martial, Paul Pogba, Phil Jones, Luke Shaw, Aaron Wan-Bissaka, Jesse Lingard og Victor Lindelöf gegn Newcastle í gær.

Manchester United tapaði, 1-0, gegn Newcastle á útivelli og staðan er slæm miðað við væntingar United-manna.

United mætir Liverpool á heimavelli þann 20. oktober og ljóst er að ef allir af þeim ofannefndu verða fjarverandi verður leikmannhópur Rauðu Djöflanna ansi þunnskipaður af reynslumiklum leikmönnum.
Athugasemdir
banner
banner