Eistar í skýjunum - Vantaði sjö byrjunarliðsmenn gegn Íslandi

Eistar sýndu mikla trú og baráttuanda gegn Íslandi.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Eistar fagna marki sínu í 1-1 jafnteflinu á Laugardalsvelli.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eistar héldu lykilmönnum Íslands í skefjum.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Jurgen Henn landsliðsþjálfari Eistlands.

Mynd: EPA

Arnar Gunnlaugsson.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eistar sýndu mikla trú og baráttuanda gegn Íslandi.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Eistland, sem er í 127. sæti FIFA listans, er ósigrað í C-deild Þjóðadeildarinnar og gerði tvívegis jafntefli gegn Íslandi í glugganum. Liðið fær verðskuldað lof í heimalandinu eftir markalausa jafnteflið gegn Íslandi í Tallinn í gær enda sýndi það gott skipulag, mikinn baráttuanda og liðsheild.
Og það þrátt fyrir að marga fastamenn í byrjunarliðinu hafi vantað.
„Af ýmsum ástæðum vantaði verulegan hluta af okkar byrjunarliðsmönnum í liðið gegn Íslandi: markvörðinn (Hein), annan miðvörðinn (Mets), báða kantmennina (Larsen og Sinjavski), tvo miðjumenn (Käit og Shein) og einn sóknarmann (Sappinen). Alls var um að ræða sjö leikmenn sem Henn hefði mjög líklega valið í byrjunarliðið ef hann hefði getað. Það væri líka hægt að bæta Soufian Gourami á listann. Hefði þetta verið afsökun eða réttlæting ef liðið hefði tapað? Að lokum skipti það ekki máli," skrifar Ojassaar.

Innkastið - Ósáttir en ósigraðir
Jürgen Henn landsliðsþjálfari Eistlands er greinilega á góðri leið með að búa til mjög öfluga liðsheild. Liðið fékk lof frá Arnari Gunnlaugssyni, landsliðsþjálfara Íslands, og einnig frá íslenskum fjölmiðlamönnum eftir leikinn. Eistneskir fjölmiðlar gefa því líka mikið hrós og segja að það hefði átt skilið að taka öll stigin af Íslandi í gær.
„Eistneska landsliðið sýndi mikinn sigurvilja í öllum fjórum leikjunum í þessum landsliðsglugga og að það er reiðubúið að leggja meira á sig en andstæðingurinn til þess að ná því markmiði. Leikur liðsins einkennist af sjálfstrausti sem hefur byggst upp í kjölfar velgengni. Dyggir stuðningsmenn eru farnir að hafa óbilandi trú á liðinu," skrifar Ojassaar.
Hann segir að þó völlurinn hafi verið talsvert frá því að vera fullur, af stórum hluta vegna tímasetningarinnar á leiknum, þá hafi verið öflugt andrúmsloft og góður stuðningur.
Héldu lykilmönnum Íslands í skefjum
Hákon Arnar, Orri Steinn og Andri Lucas náðu ekki að sýna sínar bestu hliðar í Tallinn. Eistneska liðið náði að halda lykilmönnum í sóknarleik Íslands í skefjum.
„Þetta var virkilega erfitt kvöld fyrir okkur. Eistarnir voru beinskeyttir og ég fílaði liðið þeirra. Þeir voru mjög ‘direct’ og voru að valda okkur miklum vandræðum, sérstaklega í fyrri hálfleik. Við náðum engum takti í pressuna okkar og héldum illa í bolta og vorum að gefa óþarfa langar sendingar án þess að vera í neinni stöðu til að vinna seinni bolta," sagði Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands, eftir leikinn.
Þrátt fyrir að hafa mistekist að vinna Eistland í tveimur tilraunum er Ísland í bílstjórasætinu í riðlinum þegar tvær umferðir eru eftir. Ísland er með tveimur stigum meira en Eistland og mun í nóvember leika útileik gegn Búlgaríu og heimaleik gegn Lúxemborg. Efsta sæti riðilsins gefur sæti í B-deildinni en liðið í öðru sæti fer í umspil um að komast upp.
Heimild: Soccernet Eistlandi

Eistar fagna marki sínu í 1-1 jafnteflinu á Laugardalsvelli.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eistar héldu lykilmönnum Íslands í skefjum.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Jurgen Henn landsliðsþjálfari Eistlands.

Mynd: EPA

Arnar Gunnlaugsson.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Arnar Gunnlaugs: Ég held að þessi gluggi sé ekki kominn til að vera

