Fotbolti.net
07.10.26 - 07:00
Brynjar Ingi Erluson

Fékk punkta um hvað hann ætti að segja um Ronaldo

Fékk punkta um hvað hann ætti að segja um Ronaldo
Canon

Mynd: EPA

Cristiano Ronaldo segir Jorge Jesus, þjálfara portúgalska landsliðsins, hafa fengið átta punkta til að fara yfir mál hans á fréttamannafundi en þjálfarinn hafi ekki notað þá.
Ronaldo sendi frá sér langa yfirlýsingu - Ætlar ekki að hætta
TENGT EFNI

Ronaldo sendi frá sér langa yfirlýsingu - Ætlar ekki að hætta

Ronaldo sendi frá sér langa yfirlýsingu í gær þar sem hann fór yfir atburði síðustu vikna. Þar sagði hann Jesus hafa lofað sér hálftíma gegn Noregi í annarri umferð Þjóðadeildarinnar en svikið það loforð. Í kjölfarið hefði hann pakkað niður og farið heim.

Ronaldo bað liðsfélaga sína og portúgölsku þjóðina afsökunar en tók jafnframt skýrt fram að hann væri ekki hættur með landsliðinu. Hann ætlar að gefa kost á sér í næsta verkefni, hvort sem Jesus verður enn við stjórnvölinn eða ekki.

Í yfirlýsingunni kom einnig fram að Jesus hefði fengið átta punkta frá teymi Ronaldo sem leikmaðurinn hafði sjálfur samþykkt. Þjálfarinn átti að fara yfir þá á fréttamannafundi til að útskýra stöðuna.

Allir punktarnir

1. Ég, Jorge Jesus, og enginn annar lagði fram áætlun fyrir Cristiano um þetta landsleikjaverkefni. Við áttum langt og mjög gott samtal.

2. Ég veit hversu mikið hann lifir fyrir landsliðið og elskar það. Ég veit líka hversu mikil ábyrgð hvílir á herðum hans og hversu jákvæð áhrif hann hefur haft á landsliðið í 24 ár samfleytt.

3. Cristiano samþykkti áætlunina sem ég lagði fyrir hann.

4. Hann dró ákvarðanir mínar aldrei í efa. Hann var til fyrirmyndar, sýndi hollustu og fagmennsku.

5. Leikurinn gegn Noregi var ekki hluti af áætluninni sem ég lagði fyrir hann. Mér fannst hann hins vegar hafa náð sér vel líkamlega eftir fyrsta leikinn og lét hann vita að ég gæti þurft á honum að halda. Cristiano samþykkti það.

6. Ég gerði mistök með því að senda leikmann í sama flokki og Pele og Maradona í upphitun án þess að setja hann síðan inn á. Ég myndi ekki gera það aftur.

7. Til að ljúka þessari umræðu: Ég vil Cristiano í landsliðið. Ég vil hann svo sannarlega með. Sem betur fer hefur hann trú á mér, rétt eins og hjá Al Nassr.

8. Varðandi það að hann heilsaði ekki stuðningsmönnum þá höfum við rætt það. Maður sem hefur spilað meira en 230 landsleiki þarf enga kennslustund frá mér um ást sína á Portúgal. Hann var pirraður á því augnabliki og því verður ekki breytt. Enginn leikmaður gefur fleiri eiginhandaráritanir, tekur fleiri sjálfur eða sýnir stuðningsmönnum meiri ást. Við skulum ekki búa til vandamál sem eru ekki til staðar. Þegar fólk er óánægt bregst það við. Það er allt og sumt.
Fékk punkta um hvað hann ætti að segja um Ronaldo
Canon

Mynd: EPA

Fékk punkta um hvað hann ætti að segja um Ronaldo
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.