Fotbolti.net
07.10.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Aftur til Liverpool eftir stutta lánsdvöl í Finnlandi

Aftur til Liverpool eftir stutta lánsdvöl í Finnlandi
Canon

Mynd: EPA

Enski varnarmaðurinn Amara Nallo er kominn aftur til Liverpool eftir nokkurra mánaða lánsdvöl hjá HJK Helsinki í Finnlandi.
Hinn 19 ára gamli Nallo fór á láni til HJK í sumar en var aðeins þrisvar í byrjunarliði finnska liðsins. Hann átti að vera þar út árið en er kominn aftur til Liverpool fyrr en áætlað var vegna meiðsla.

Varnarmaðurinn komst í sögubækur Liverpool á síðustu leiktíð þegar hann fékk rautt spjald í sínum fyrsta leik fyrir félagið, gegn PSV í Meistaradeildinni. Hann var svo aftur rekinn af velli í næsta leik sínum, þegar Liverpool tapaði fyrir Crystal Palace í enska deildabikarnum.

Nallo á alls þrjá leiki að baki fyrir aðalliðið en hann lék einnig fimmtán mínútur gegn Qarabag.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.