06.10.26 - 21:35
Brynjar Ingi Erluson
„Ekkert pláss fyrir farþega í hópnum lengur“

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Kári Árnason

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Kári Árnason og Lárus Orri Sigurðsson, spekingar á Sýn, voru lítt hrifnir af frammistöðu Íslands þegar þeir gerðu upp markalausa jafnteflið við Eistland í Þjóðadeildinni í kvöld.

TENGT EFNI
Ísland áfram taplaust á toppnum
Frammistaða Íslands í leikjunum tveimur gegn Eistlandi var langt undir væntingum miðað við styrkleikamun liðanna. Eistar hefðu með smá heppni getað unnið báða leikina og Ísland má því ef til vill þakka fyrir stigin tvö.
Kári sagði besta kafla Íslands hafa komið undir lok leiksins en taldi Hákon hafa bjargað stiginu.
„Þetta var ekki gott og við hefðum tapað þessum leik hefði Hákon ekki verið í marki.“
„Besti kaflinn í leiknum var alveg undir blálokin þá eigum við tíu mínútur og þeir miklu þreyttari en við virðist vera, en upp að því voru þeir miklu betri í seinni hálfleik og líklegri til að skapa sér færi. Það kallaði pínu á Jón Dag, því það komu oft upp stöður þar sem Mikael Neville gat farið á sinn mann og tekið hann á því Daníel var alltaf fyrir aftan hann tilbúinn ef hann skyldi missa boltann og aldrei að fara í 'overlap' eða svoleiðis. Kannski var það dagsskipan frá Arnari en ég vildi sjá Mikael fara á hann einn á einn eins og Jón Dagur er vanur að gera. Ég var að bíða eftir að Jón kæmi inn á en hann gerir það ekki.“
„Þetta eru svosem ágætis úrslit en ég ætla ekkert að segja að þetta sé frábært að við erum að gera jafntefli og sköpum ekki á móti liði sem er í 125. sæti.“
„Við erum á toppi riðilsins en auðvitað hefðum við viljað sjá sigur á móti Eistum í báðum leikjum en við vorum heppnir að komast með eitt stig frá þessum leik.“
Landsleikjahléið var óvenjulangt en leikmennirnir spiluðu fjóra leiki og voru saman í þrjár vikur. Kári sagði slíkt fyrirkomulag kalla á að allir í hópnum gætu lagt sitt af mörkum og ekkert pláss væri lengur fyrir farþega.
„Bara tvö tveggja vikna hlé finnst mér eðlilegra af því maður er vanur því. Það er ekkert pláss fyrir farþega í hópnum lengur og við höfum svolítið verið með það í gegnum tíðina. Strákar sem eru þarna meira til að æfa frekar en að spila. Hann gekk vel á hópinn og notaði mikið af mönnum og gerði það vel, en alveg klárlega er ekkert pláss fyrir farþega.“
Ekki góður leikur
Lárus Orri tók undir gagnrýnina, sagði sóknarleikinn bitlausan og velti fyrir sér hvernig Ísland hefði ætlað að brjóta niður vörn Eista.
„Þetta var alls ekki gott og maður veltir fyrir sér hvert uppleggið var, hvar ætluðum við að sækja á þá og brjóta þessa vörn niður? Ég veit það ekki.“
„Ekki góður leikur og vorum frekar bitlausir fram á við. Mikið um feilsendingar, úrræðaleysi í sóknarleiknum og lofsyngja framherjana tvo fyrir leik en þeir voru í raun ekki með í leiknum. Þeir eru að spila með fimm eða sex leikmenn á mjög þéttu svæði en við förum ekkert að senda boltann fyrir.“
„Neinei, lítum á þetta svona að við erum búnir að fá á okkur eitt mark í fjórum leikjum en þetta var alls ekki gott. Ég skil ekki hvernig við getum réttlætt það að setja Guðlaug Victor í þá stöðu að spila sóknarleikinn þarna. Hann er ekki góður fyrir okkur þarna, ekki góð staða fyrir hann og við ekki að gera honum neina greiða,“ sagði Lárus.