07.12.14 - 19:38
Brynjar Ingi Erluson
- LeikmannamálBjörgvin Stefánsson í Hauka (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Haukar í fyrstu deild karla hafa fengið vænan liðsstyrk fyrir átökin næsta sumar en Björgvin Stefánsson er kominn aftur til félagsins frá BÍ/Bolungarvík.
Björgvin, sem er uppalinn í Haukum, á að baki 58 leiki með liðinu í deild- og bikar og þá hefur hann gert átta mörk.
Hann samdi við BÍ/Bolungarvík fyrir síðasta tímabil og gerði þar 9 mörk í 14 leikjum en hann gerði þá tveggja ára samning við félagið.
Hann hefur undanfarnar vikur reynt að losna frá BÍ/Bolungarvík og gekk það upp á dögunum en hann er kominn aftur í Hafnarfjörðinn.
Björgvin skrifaði undir hjá Haukum á fimmtudag en þetta er fyrsti leikmaðurinn sem Luka Kostic fær til félagsins.