18:00Takk fyrir samfylgdina í gegnum þessa beinu textalýsingu! Áfram Ísland!
17:59Já ég held að við getum verið ansi sátt með þennan drátt í dag!
Þýskaland er langsigurstranglegasta lið riðilsins. Rúmena unnum við í EM umspilinu. Norður-Makedónía og Armenía bjóða uppá snúna útileiki. Leiðinlegt að Helgi Kolviðsson sé ekki lengur með Liechtenstein.
17:49I-riðill:
England
Pólland
Ungverjaland
Albanía
Andorra
San Marínó
17:48Svona er H-riðill:
Holland
Tyrkland
Noregur
Svartfjallaland
Lettland
Gíbraltar
17:47RIÐILL ÍSLANDS ER KLÁR (STAÐFEST)
J-riðill:
Þýskaland
Rúmenía
ÍSLAND
N-Makedónía
Armenía
Liechtenstein
17:46F-riðill:
Danmörk
Austurríki
Skotland
Ísrael
Færeyjar
Moldóva
Þessi er klár (Staðfest)
17:44E-riðill:
Belgía
Wales
Tékkland
Hvíta-Rússland
Eistland
Þessi riðill er klár (Staðfest)
17:44J-riðill:
Þýskaland
Rúmenía
ÍSLAND
Makedónía
Armenía
17:43D-riðill:
D-riðill:
Frakkland
Úkraína
Finnland
Bosnía
Kasakstan
Þessi riðill er klár (Staðfest)
17:43C-riðill:
Ítalía
Sviss
Norður-Írland
Búlgaría
Litháen
Þessi riðill er klár (Staðfest)
17:42B-riðill:
Spánn
Svíþjóð
Grikkland
Georgía
Kosóvó
Þessi riðill er klár (Staðfest)
17:42A-riðill:
Portúgal
Serbía
Írland
Lúxemborg
Aserbaidsjan
Þessi riðill er klár (Staðfest)
17:42Jæja þá er það fimmti potturinn!
17:41I-riðill:
England
Pólland
Ungverjaland
Albanía
17:41H-riðill:
Króatía
Slóvakía
Rússland
Slóvenía
17:40J-riðill:
Þýskaland
Rúmenía
ÍSLAND
Norður-Makedónía
17:40G-riðill:
Holland
Tyrkland
Noregur
Svartfjallaland
17:39F-riðill:
Danmörk
Austurríki
Skotland
Ísrael
17:39E-riðill:
Belgía
Wales
Tékkland
Hvíta-Rússland
17:39D-riðill:
Frakkland
Úkraína
Finnland
Bosnía
17:38C-riðill:
Ítalía
Sviss
Norður-Írland
Búlgaría
17:38B-riðill:
Spánn
Svíþjóð
Grikkland
Georgía
17:38Jæja dregið úr fjórða potti:
A-riðill:
Portúgal
Serbía
Írland
Lúxemborg
17:37Ísland verður í sex liða riðli. Það er ljóst. Við erum nýbúnir að vinna Rúmeníu. Þetta er bara fínasti dráttur fyrir okkur tel ég!
17:36Ungverjaland er í I-riðli með Englandi og Póllandi.
17:35ÍSLAND ER Í J-RIÐLI MEÐ ÞÝSKALANDI OG RÚMENÍU
17:35Rússland fer í H-riðil með Króatíu og Slóvakíu.
17:34Noregur í G-riðil með Hollandi og Tyrklandi. Erfiður riðill.
17:34Skotland fer í F-riðil með Danmörku og Austurríki
17:33Finnland fer í D-riðil með Frakklandi og Úkraínu
Tékkland fer í E-riðil með Belgíu og Wales
17:33Írland fer í A-riðil með Portúgal og Serbíu
Grikkland fer í B-riðil með Spáni og Svíþjóð
Norður-Írland fer í C-riðl með Ítalíu og Sviss
17:32Jæja þá er það okkar pottur, þriðji styrkleikaflokkur.
17:31Riðill A: Portúgal, Serbía
Riðill B: Spánn, Svíþjóð
Riðill C: Ítalía, Sviss
Riðill D: Frakkland, Úkraína
Riðill E: Belgía, Wales
Riðill F: Danmörk, Austurríki
Riðill G: Holland, Tyrkland
Riðill H: Króatía, Slóvakía
Riðill I: England, Pólland
Riðill J: Þýskaland, Rúmenía
17:28Dregið úr styrkleikaflokki 2.
Serbía fer í A-riðil með Portúgal. Svíþjóð í B-riðil með Spáni.
17:26Riðill A: Portúgal
Riðill B: Spánn
Riðill C: Ítalía
Riðill D: Frakkland
Riðill E: Belgía
Riðill F: Danmörk
Riðill G: Holland
Riðill H: Króatía
Riðill I: England
Riðill J: Þýskaland
17:24Dregið úr styrkleikaflokki 1.
Portúgal fer í A-riðil, Spánn í B-riðil og Danmörk er í F-riðli.
17:21Komið að þessu
Jæja þá fer drátturinn að hefjast... fólk er komið í stöður á sviðinu góða í Zurich. Margar sviðsmyndir sem hægt er að teikna upp varðandi íslenska riðilinn.
17:18Jæja nú er myndband þar sem verið er að útskýra dráttinn. Við höfum fyrir löngu gert það í þessari textalýsingu svo lesendur Fótbolta.net eru með allt á hreinu.
17:12Jæja fleiri upprifjunarmyndbönd. Nú er verið að rifja upp HM í Rússlandi 2018. Rosalega var gaman í Rússlandi.
17:06Rafael van der Vaart og Daniele De Rossi eru mættir í sófann og eru núna að minnast Diego Armando Maradona.

17:01Athöfnin er farin af stað. Þetta byrjar á dramatísku myndbandi þar sem rifjaðir eru upp gamlir og góðir tímar.
16:58Vinir okkar á RÚV sýna dráttinn í beinni á heimasíðu sinni.
Smelltu hér til að horfa á athöfnina í beinni! Svo minnum við auðvitað á kassamerkið
#fotboltinet fyrir færslur um dráttinn á Twitter. Hver er þín ósk?
16:56
Sviðið er klárt!
16:52Jæja nokkrar mínútur í að athöfnin fer af stað! Þrátt fyrir að um "fjarfund" verði að ræða að mörgu leyti vegna ástandsins í heiminum þá verður lopinn örugglega teygður eins mikið og mögulegt er. Kannski fáum við einhver leiðinleg dansatriði og allan pakkann!
16:38
Daniele De Rossi aðstoðar við dráttinn í dag. Alvöru töffari sem lék 116 landsleiki fyrir Ítalíu og varð heimsmeistari 2006.
15:57Í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 sett ég, ásamt Tómasi Þór Þórðarsyni, upp nokkra riðla sem Ísland gæti dregist í.
Martraðariðill: Það yrði hrikalega erfitt að komst upp úr þessum riðli.
Belgía
Sviss
ÍSLAND
Slóvenía
Armenía
Draumariðill: Hér er möguleiki!
Danmörk
Rúmenía
ÍSLAND
Lúxemborg
Andorra
Ferðariðillinn: Lönd sem er gaman að heimsækja. Þó mikil vonbrigði að ekki sé möguleiki á að lenda með Færeyjum.
Ítalía
Wales
ÍSLAND
Ísrael
Eistland
Malta
15:30Hvar verður dregið?
Drátturinn fer fram í höfuðstöðvum FIFA í Zurich í Sviss. Það verða fáir viðstaddir vegna heimsfaraldursins en tæknin verður nýtt til að gera útsendinguna sem öflugasta.
Hvað mun gerast?
55 þjóðir eru í pottinum og verða dregnar í tíu riðla. Barist verður um þrettán laus sæti á HM. Efsta liðið í hverjum riðli fer beint á HM 2022 en liðin í 2. sæti fara í umspil.
Hvernig virkar umspilið?
Liðin tíu sem enda í öðru sæti, ásamt tveimur þjóðum sem vinna sér inn réttindi gegnum Þjóðadeildina, fara í umspilið. Það verða því 12-liða úrslit og svo þrír úrslitaleikir um sæti á HM 2022.
Hvernig virkar drátturinn?
Byrjað verður að draga lið úr fyrsta styrkleikaflokki í riðla A til J. Svo verður farið í næsta styrkleikaflokk. Það eru þó einhver flækjustig og vissar þjóðir sem geta ekki verið saman í riðli, meðal annars vegna pólitísks ágreinings.
Ísland og Færeyjar geta ekki dregist saman en ástæðan er sú að þjóðirnar eru það norðanlega að erfiðara er að glíma við frestanir vegna veðurs.
Hvaða stjörnur taka þátt í athöfnunni?
Daniele De Rossi og Rafael van der Vaart munu aðstoða við dráttinn. Mótastjóri FIFA, Jaime Yarza, stýrir athöfninni.
15:25HM Í KATAR 2022
Efsta liðið í hverjum riðli fer beint á HM 2022 en liðin í 2. sæti fara í umspil. HM 2022 verður haldið í Katar 21. nóvember til 18 desember. Í Katar hafa menn lofað besta heimsmeistaramóti sögunnar, hvorki meira né minna!
Það er allt að verða klárt í Katar en á meðfylgjandi mynd má sjá Gianni Infantino í heimsókn nýlega en hann skoðaði leikvangana glæsilegu.
Það eru tíu ár síðan Sepp Blatter tilkynnti að HM 2022 yrði haldið í Katar.
15:20Hver stýrir Íslandi?Enn er ekki ljóst hver verður landsliðsþjálfari Íslands í komandi undankeppni. Lars Lagerback, Arnar Þór Viðarsson, Freyr Alexandersson, Rúnar Kristinsson og Heimir Guðjónsson hafa mest verið í umræðunni.
Guðni Bergsson, formaður KSÍ, hefur gefið það út að stefnan sé að búið verði að ganga frá ráðningu á nýjum manni fyrir jól.

15:15Góðan og gleðilegan daginn og verið velkomin með okkur í þráðbeina textalýsingu frá HM drættinum. Í dag ræðst það hvaða lið verða með okkur í riðli í undankeppni HM en riðillinn verður allur spilaður á næsta ári. Fyrstu leikirnir verða í lok mars.