Fotbolti.net
07.12.20 - 17:20
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalska deildin

Balotelli semur við Monza (Staðfest)

Balotelli semur við Monza (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Sóknarmaðurinn Mario Balotelli er loksins búinn að finna sér nýtt félag. Balotelli hefur verið samningslaus frá því að síðasta tímabili lauk en hann var síðast á mála hjá Brescia.
Hann er búinn að skrifa undir samning við Monza, sem er ítölsku B-deildinni.

Silvio Berlusconi, fyrrum eigandi AC Milan og forsætisráðherra Ítalíu, er núverandi eigandi Monza.

Monza stefnir upp í efstu deild og er með Kevin-Prince Boateng innanborðs. Liðið er í níunda sæti sem stendur, með 14 stig eftir tíu umferðir.

Balotelli er þrítugur að aldri. Hann er mjög litríkur karakter og hefur komist í vandræði utan vallar. Hann hefur meðal annars spilað með Inter, AC Milan, Manchester City og Liverpool á sínum leikmannaferli.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.