Fotbolti.net
07.12.20 - 23:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

„Daginn fyrir stærsta leik tímabilsins. Ótrúlegt"

Paul Pogba.

Paul Pogba.

Canon

Mynd: Getty Images

Manchester United mun væntanlega reyna að losa sig við franska miðjumanninn Paul Pogba í næstu tveimur félagaskiptagluggum.
Mino Raiola, umboðsmaður Pogba, tjáði sig um það opinberlega í fjölmiðlum í dag að Pogba vilji fara frá félaginu. Raiola lét þetta frá sér degi fyrir mikilvægasta leik tímabilsins hjá United, gegn RB Leipzig í Meistaradeildinni.

Real Madrid og Juventus hafa lengi verið orðuð við Pogba sem hefur spilað þrettán leiki í öllum keppnum á þessu tímabili.

Honum hefur gengið illa að ná upp stöðugleika síðan hann kom aftur til Manchester United árið 2016. Hann var þá keyptur fyrir 89 milljónir punda frá Juventus.

Rob Dawson, blaðamaður hjá ESPN, telur að það sé gott fyrir Pogba að stuðningsmenn Manchester United fái ekki að mæta á Old Trafford. Manchester United og Manchester City fá ekki leyfi fyrir áhorfendur strax þar sem kórónuveirufaraldurinn er verri þar en til að mynda í London og Liverpool þar sem áhorfendur eru leyfðir.

„Pogba gæti verið sá eini í Manchester sem er þakklátur fyrir það að stuðningsmönnum er ekki hleypt inn á Old Trafford. Hann og umboðsmaður hans hafa komið fram við félagið af fyrirlitningu enn eina ferðina og meirihluti stuðningsmanna eru búnir að fá nóg af því. Daginn fyrir stærsta leik tímabilsins. Ótrúlegt," skrifar Dawson.

Man Utd mætir RB Leipzig í Þýskalandi á morgun. Jafntefli dugir United, en tapi liðið þá eru meiri líkur á því en ekki að það fari ekki áfram í 16-liða úrslit keppninnar.

Pogba skoraði gegn West Ham í deildinni um síðustu helgi og það verður fróðlegt að sjá hvort hann fái að spila á morgun eftir það sem hefur gengið á í dag. Hann ferðaðist með liðinu til Þýskalands.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.