07.12.20 - 22:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kallar Lagerback „sænska risaeðlu"

Lagerback var rekinn frá Noregi.

Mynd: Samsett

Lagerback var rekinn frá Noregi.

Mynd: Samsett
Lars Lagerback var rekinn úr starfi landsliðsþjálfara Noregs í síðustu viku eftir þrjú ár í starfi.
Lagerback mistókst að koma Noregi á EM í fótbolta og virðist hann ekki vera vinsæll í landinu, að minnsta kosti ekki eins vinsæll og á Íslandi.
Inn á vefsíðu Folkebladet í Noregi er skrifaður ansi harðorður pistill í garð Lagerback.
„Í stað þess að veðja á sænsku risaeðluna, þá ákvað norska knattspyrnusambandið að fá inn ferskt blóð í formi Stale Solbakken," skrifar Knut Løkse Nilssen í pistli sínum.
Hann segir það fullkomlega skiljanlegt að ákveðið hafi verið að skipta „risaeðlunni" Lagerback út. Nilssen segir að Lagerback hafi lyft norska liðinu örlítið upp, en hann hafi tekið skrítnar ákvarðanir.
„Margir hafa hrist höfuðið yfir því að félagslausir leikmenn og gamlir varamenn hafi fengið að endurnýja klippikort sín hvað eftir annað. Á meðan yngri leikmenn, sem jafnvel spila reglulega fyrir félagslið sín, hafi þurft að sitja á bekknum."
Hann gagnrýnir einnig leikstíl Lagerback og fagnar því að fá Solbakken inn.
Dregið var í undankeppni HM 2022 í dag og þar er Noregur í riðli með Hollandi, Tyrklandi, Svartfjallalandi, Lettlandi og Gíbraltar.
Hinn 72 ára gamli Lagerback hefur verið orðaður við endurkomu í þjálfarastarfið hjá Íslandi. Sagt er að leikmenn Íslands vilji fá Svíann aftur.