Fotbolti.net
08.01.15 - 15:00
Magnús Már Einarsson

Andri Þór aftur í Fylki (Staðfest) - Elís framlengir

Andri Þór Jónsson.

Andri Þór Jónsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Fylkir hefur endurnýjað samninga við tvo leikmenn en þeir Elís Rafn Björnsson og Andri Þór Jónsson skrifuðu rétt í þessu báðir undir þriggja ára samninga.

Andri Þór snýr aftur í Fylki eftir að hafa ekkert spilað með Árbæingum síðastliðið sumar þar sem hann dvaldi erlendis.
Elís Rafn Björnsson er 22 ára miðjumaður sem var í lykilhlutverki hjá Fylki á síðustu leiktíð og lék fyrstu 14 deildarleikina áður en hann hélt til náms í Bandaríkjunum í ágúst. Elís Rafn á að baki 50 deildarleiki fyrir félagið og hefur skorað í þeim fjögur mörk. Þá á Elís einn landsleik með U-21 árs landsliði Íslands.

Andri Þór Jónsson er 23 ára varnarmaður sem hefur yfirleitt spilað í stöðu hægri bakvarðar. Andri Þór lék fyrst með Fylkismönnum árið 2010 en hann á að baki 38 deildarleiki fyrir félagið og hefur skorað í þeim eitt mark.

Leikmennirnir koma til Fylkis í maí og mun Andri Þór þá hafa lokið námi sínu í Bandaríkjunum og mun klára tímabilið með Fylki. Elís mun hinsvegar snúa aftur til náms í ágúst.

,,Knattspyrnudeild Fylkis lýsir yfir mikilli ánægju með að tryggja sér þjónustu þessara öflugu leikmanna sem báðir eru uppaldir í félaginu,\" segir í tilkynningu frá Fylki.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.