08.01.15 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Leikstjórnandi Villarreal lánaður til Atletico (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Atletico Madrid er búið að bæta öðrum leikmanni við sig á lánssamning í janúarglugganum eftir komu Fernando Torres frá AC Milan.
Ruben Gracia, betur þekktur sem Cani, er 33 ára gamall leikstjórnandi Villarreal sem hefur leikið yfir 300 leiki í treyju Villarreal síðan hann kom til félagsins fyrir níu árum.

Cani mun taka við hlutverki Alessio Cerci sem var lánaður til Milan og er Jose Luis Caminero, yfirmaður íþróttamála hjá Atletico, himinlifandi með viðbótina.
,,Hann er leikreyndur í spænsku efstu deildinni og býr yfir gífurlegum hæfileikum sem munu auka samkeppni milli leikmanna félagsins,\" sagði Caminero.
,,Hann er vanur að axla mikla ábyrgð og við erum ánægðir með komu hans því hann getur gert gæfumuninn á mikilvægasta kafla tímabilsins.\"
Stuðningsmenn Atletico vona að Cani verði liðinu jafn mikilvægur og Diego Ribas var þegar hann kom á láni á síðasta tímabili og skoraði gegn Barcelona í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.