08.01.15 - 18:02
Elvar Geir Magnússon
Victor Valdes búinn að semja við Man Utd (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Markvörðurinn Victor Valdes hefur skrifað undir 18 mánaða samning við Manchester United með möguleika á því að framlengja um ár til viðbótar.
„Það er mikil ánægja með að vera búinn að skrifa undir samninginn. Ég er mjög þakklátur knattspyrnustjóranum,\" segir Valdes sem hefur æft með United í vetur.

Valdes mun væntanlega vera varamarkvörður fyrir David de Gea sem hefur verið frábær í marki United á tímabilinu.
„Þegar ég mætti fyrst á æfingsvæðið sá ég stóra rauða stafi þar sem stóð Manchester United. Þetta var eins og draumur fyrir mér.\"
Valdes þarf ekki að kynna fyrir fótboltaáhugamönnum en hann varði mark Barcelona lengi og vann fjölda titla með liðinu, þar af Meistaradeildina þrívegis. Hann kemur til United á frjálsri sölu.

#mufc is delighted to announce that Victor Valdes has signed an 18-month contract with an option for a further year. pic.twitter.com/zze20zt3E8
— Manchester United (@ManUtd) January 8, 2015