Fotbolti.net
08.01.15 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Vitor Pereira tekinn við Olympiakos (Staðfest)

Vitor Pereira tekinn við Olympiakos (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Portúgalski þjálfarinn Vitor Pereira hefur verið ráðinn sem nýr þjálfari Olympiakos.

Pereira er 46 ára gamall og hefur meðal annars þjálfað Al-Ahli í Sádí-Arabíu og Porto í Portúgal.
,,Olympiakos vill kynna portúgalska stjórann Vitor Pereira sem nýjan þjálfara félagsins,\" stendur í yfirlýsingu á vefsíðu gríska félagsins.

Pereira tekur við af Spánverjanum Michel sem gerði frábæra hluti við stjórnvölinn hjá Olympiakos þar sem hann vann deildina tvisvar og gríska bikarinn einu sinni.

Pereira vann portúgölsku deildina tvisvar á tveimur árum hjá Porto og fór svo til Al-Ahli sumarið 2013.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.