08.01.15 - 17:00
Elvar Geir Magnússon
Wentzel Steinarr og Sævar Freyr í Aftureldingu (Staðfest)

Sævar Freyr í leik með Leikni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sævar Freyr í leik með Leikni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tveir Mosfellingar hafa snúið aftur til Aftureldingar og skrifað undir tveggja ára samning en það eru Sævar Freyr Alexandersson og Wentzel Steinarr Ragnarsson Kamban.
Sævar sem verður þrítugur á þessu ári, er uppalinn í Aftureldingu og á nú þegar að baki 135 leiki fyrir félagið. Samtals hefur Sævar leikið 175 meistaraflokksleiki á ferlinum og skorað 14 mörk.
Eftir sumarið 2012 gekk Sævar til liðs við Leikni í 1. deild og var í leikmannahópi liðsins sem tryggði sér sæti í Pepsi-deildinni í fyrra.
„Sævar er fjölhæfur og kraftmikill leikmaður og kemur með mikla reynslu og sterkan karakter inn í leikmannahóp Aftureldingar. Knattspyrnudeild fagnar því að fá jafn reynslumikinn leikmann með hjartað á réttum stað, aftur á heimaslóðir,\" segir á heimasíðu Aftureldingar en liðið var nálægt því að falla úr 2. deildinni í fyrra.
Wentzel Steinarr lék eitt tímabil með ÍA í 1. deildinni í fyrra en þá spilaði hann níu deildarleiki. Hann er sóknarsinnaður leikmaður fæddur 1988 og á að baki 160 leiki fyrir Aftureldingu í Íslandsmóti og bikarkeppni, þar hefur hann skorað 36 mörk.

Wentzel Steinarr er kominn heim.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð