Stefán Teitur Þórðarson hefur verið kallaður inn í hóp A-landsliðsins sem mætir El Salvador og Kanada í vináttuleikjum í Bandaríkjunum seinna í mánuðinum.
Stefán kemur inn í hópinn í stað Emils Hallfreðssonar sem getur ekki tekið þátt í verkefninu.
Stefán kemur inn í hópinn í stað Emils Hallfreðssonar sem getur ekki tekið þátt í verkefninu.
Þetta er í fyrsta sinn sem Stefán Teitur er valinn í hóp hjá A-landsliði karla en hann hefur leikið tólf leiki með U21 árs liðinu og skorað eitt mark.
Stefán er leikmaður ÍA og skoraði eitt mark í tuttugu leikjum fyrir félagið í Pepsi Max-deildinni í sumar.
Sjá einnig:
Raggi og Birkir ekki með til Bandaríkjanna - Nálgast ný félög
Áhugaverður janúarhópur - Blanda af fastamönnum og reynsluminni leikmönnum
Emil ekki með landsliðinu til Bandaríkjanna
Athugasemdir