08.09.26 - 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Grímsi ætlar að ná leiknum gegn FH - „Þetta er mjög skrítið"

Markahæsti leikmaður KA á tímabilinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KA vann sinn fyrsta leik síðan 12. júlí á sunnudag.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Fann fyrir meiðslunum eftir leikinn gegn Fram.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Markahæsti leikmaður KA á tímabilinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hallgrímur Mar Steingrímsson, leikmaður KA, gat ekki spilað með liðinu gegn Breiðabliki á sunnudag. Grímsi, eins og hann er oftast kallaður, glímir við smávægileg hnémeiðsli og ætlar að reyna á það í vikunni hvort hann geti spilað í næsta leik sem verður gegn FH á Kaplakrikavelli næsta sunnudag.
„Það er eitthvað að plaga mig í hnénu, ég veit ekki alveg hvað það er. Ég veit ekki hvað kom fyrir, en þetta er mjög lítið og við erum ennþá að reyna finna út almennilega hvað þetta er. Ég reikna með því að geta spilað um helgina á móti FH, en þarf að bíða og sjá næstu daga hvernig þetta þróast. Þetta er ekki liðband eða neitt svoleiðis og það er dagamunur á mér. Þetta er mjög skrítið og ég vona að þetta fari á næstu tveimur dögum," segir Grímsi sem fann fyrir eymslunum eftir leikinn gegn Fram.
Bjartsýnn á að ná leiknum
„Ég þurfti svo að hætta á æfingu á miðvikudeginum í síðustu viku, þetta var orðið frekar vont þá. Ég bíð og sé til."
„Ég á ekki von á að þurfa að fara í sprautu, ég er alveg bjartsýnn á að geta spilað á sunnudaginn þó að ég hafi ekki getað spilað gegn Blikum. Ég ætla prufa mig áfram á æfingu í dag og svo verður vonandi stígandi í því. Ég verð svo vonandi klár í leikinn."
Hálfgert spennufall
Grímsi, sem er markahæsti leikmaður KA á tímabilinu með tíu mörk, er ekki vanur því að ná ekki að spila með KA og um mjög langt skeið missti hann ekki af leik hjá liðinu. Var skrítið að fylgjast með úr stúkunni?
„Það var sérstaklega skrítið á móti Breiðabliki því ég var að fylgjast með úrslitum úr tveimur öðrum leikjum á sama tíma. Maður var í hálfgerðu spennufalli eftir leik, því það var eiginlega betra að vera í 11. sæti heldur en 10. sætinu. Ég var að vonast síðustu tíu mínúturnar að staðan myndi ekki breytast," segir Grímsi að lokum.
Liðið í 11. sæti fær heimaleik gegn 10. og 12. sætinu. Það þýðir að KA fær Þór og ÍBV í heimsókn í neðri hlutanum. Akureyrarslagurinn fram á Greifavellinum annan laugardag og ÍBV kemur svo í heimsókn í lokaumferðinni.
Neðri hlutinn - 1. umferð
sunnudagur 13. september
14:00 FH-KA (Kaplakrikavöllur)
14:00 Valur-Þór (N1-völlurinn Hlíðarenda)
14:00 Stjarnan-ÍBV (Samsungvöllurinn)
Bjartsýnn á að ná leiknum
„Ég þurfti svo að hætta á æfingu á miðvikudeginum í síðustu viku, þetta var orðið frekar vont þá. Ég bíð og sé til."
„Ég á ekki von á að þurfa að fara í sprautu, ég er alveg bjartsýnn á að geta spilað á sunnudaginn þó að ég hafi ekki getað spilað gegn Blikum. Ég ætla prufa mig áfram á æfingu í dag og svo verður vonandi stígandi í því. Ég verð svo vonandi klár í leikinn."
Hálfgert spennufall
Grímsi, sem er markahæsti leikmaður KA á tímabilinu með tíu mörk, er ekki vanur því að ná ekki að spila með KA og um mjög langt skeið missti hann ekki af leik hjá liðinu. Var skrítið að fylgjast með úr stúkunni?
„Það var sérstaklega skrítið á móti Breiðabliki því ég var að fylgjast með úrslitum úr tveimur öðrum leikjum á sama tíma. Maður var í hálfgerðu spennufalli eftir leik, því það var eiginlega betra að vera í 11. sæti heldur en 10. sætinu. Ég var að vonast síðustu tíu mínúturnar að staðan myndi ekki breytast," segir Grímsi að lokum.
Liðið í 11. sæti fær heimaleik gegn 10. og 12. sætinu. Það þýðir að KA fær Þór og ÍBV í heimsókn í neðri hlutanum. Akureyrarslagurinn fram á Greifavellinum annan laugardag og ÍBV kemur svo í heimsókn í lokaumferðinni.
Neðri hlutinn - 1. umferð
sunnudagur 13. september
14:00 FH-KA (Kaplakrikavöllur)
14:00 Valur-Þór (N1-völlurinn Hlíðarenda)
14:00 Stjarnan-ÍBV (Samsungvöllurinn)

KA vann sinn fyrsta leik síðan 12. júlí á sunnudag.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Fann fyrir meiðslunum eftir leikinn gegn Fram.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Stjarnan | 22 | -8 | 28 |
| 2 | Valur | 22 | -6 | 27 |
| 3 | FH | 22 | -12 | 21 |
| 4 | Þór | 22 | -28 | 21 |
| 5 | KA | 22 | -13 | 20 |
| 6 | ÍBV | 22 | -13 | 18 |
