08.09.26 - 12:52
Elvar Geir Magnússon
Mac Allister mjög leiður yfir því að fá ekki nýjan samning hjá Liverpool

Alexis Mac Allister.

Mynd: EPA

Í leik með argentínska landsliðinu.

Mynd: EPA

Alexis Mac Allister.

Mynd: EPA
Miðjumaðurinn Alexis Mac Allister hjá Liverpool segist mjög leiður yfir því að sér hafi ekki verið boðinn nýr samningur og viðurkennir að hafa átt möguleika á því að yfirgefa félagið í sumar.
MacAllister á tvö ár eftir af samningi sínum sem hann skrifaði undir þegar hann gekk til liðs við félagið sumarið 2023.

Dominik Szoboszlai og Ryan Gravenberch skrifuðu undir nýja langtímasamninga á þessu ári en Mac Allister var ekki boðinn nýr samningur.
„Eins og allir vita fékk ég þær fréttir að félagið væri ekki í aðstöðu til að bjóða mér nýjan samning, sem gerði mig mjög leiðan. Allir sjá að ég legg mig 100 prósent fram fyrir þetta félag, á hverjum einasta degi á æfingum og í leikjum. Auðvitað get ég átt góða og slæma leiki eins og allir. Ég geri alltaf mitt besta," segir Mac Allister.
„Ég sá Dominik og Ryan endurnýja samninga sína og ég er ánægður með það því þeir eiga það skilið, en á sama tíma gerir það mig svolítið leiðan að ég fékk ekki nýjan. Auðvitað er ennþá tími. Aðdáendurnir þurfa ekki að hafa áhyggjur því ég mun alltaf leggja mig 100 prósent fram að síðasta degi sem ég er hér."