Lið Reykjavíkur Þróttara var ólöglega skipað í leik gegn Fjölni í fyrsta leik liðanna í Reykjavíkurmóti karla. Liðin mættust 4. janúar síðastliðinn.
Gunnlaugur Hlynur Birgisson lék með Þrótti í leiknum en hann er skráður í Víking Reykjavík.
Gunnlaugur Hlynur Birgisson lék með Þrótti í leiknum en hann er skráður í Víking Reykjavík.
Samkvæmt reglum KSÍ ætti Þróttur að tapa leiknum sjálfkrafa 0-3 en þar sem úrslit leiksins urðu stærri, Fjölnir sigraði með sjö mörkum gegn engu, standa þau úrslit.
Í grein 40.1 um reglur KSÍ í knattspyrnumótum segir:
Lið, sem mætir ólöglega skipað til leiks og félag sem notar leikmann í leikbanni, telst hafa tapað leiknum með markatölunni 0-3 nema tap hafi verið stærra, þá skal sú markatala ráða. Félag sem notar þjálfara eða forystumann sem er í leikbanni skal sæta sektum og viðkomandi frekara leikbanni í samræmi við ákvörðun aga- og úrskurðarnefndar. Lið, sem mætir ólöglega skipað til leiks, skal sæta sekt að upphæð allt að kr. 50.000. Félag, sem notar leikmann, þjálfara eða forystumann í leikbanni, skal sæta sektum að upphæð allt að kr. 300.000 sé brotið framið í meistaraflokki. Sé brotið framið í öðrum flokkum skal sektin vera allt að kr. 50.000.
Í samræmi við ofangreinda reglugerð er Þróttur R sektað um kr. 25.000.-. Úrslit leiksins standa 7–0 Fjölni í vil.
Athugasemdir