Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 08. janúar 2023 19:18
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Alvarez bað um að fá að taka vítið
Mynd: EPA

Riyad Mahrez skoraði tvö mörk í 4-0 sigri Manchester City gegn Chelsea í kvöld en annað markið var úr vítaspyrnu.


Hinn ungi, Julian Alvarez skoraði einnig úr vítaspyrnu en Mahrez er venjulega vítaskyttan en hann leyfði Argentínumanninum að taka hana í þetta skiptið.

„Ég ætlaði að taka fyrstu en Alvarez spurði mig og ég sagði auðvitað, taktu það. Hann er framherji svo hann skorar og það er gott fyrir liðið. Ég vildi taka seinna vítið og það er í góðu lagi," sagði Mahrez.

Með sigrinum er City enn að berjast á öllum vígstöðum en liðið mætir Arsenal eða Oxford í næstu umferð en City er einmitt í harðri baráttu við Arsenal um englandsmeistaratitilinn.


Athugasemdir
banner
banner