Fotbolti.net
08.03.15 - 12:00
Arnar Geir Halldórsson

Andri Björn í Gróttu (Staðfest)

Andri Björn kominn aftur í Gróttu

Andri Björn kominn aftur í Gróttu

Canon

Mynd: Eyjólfur Garðarsson

Grótta undirbýr sig nú að krafti fyrir 1.deildina og er Andri Björn Sigurðsson kominn til liðsins en hann lék síðast með Selfossi.
Andri Björn kom inná sem varamaður þegar Grótta gerði 3-3 jafntefli við Víking R. í Lengjubikarnum í gær en Andri spilaði einnig með liðinu í Fótbolta.net mótinu.

Andri hóf síðasta tímabil með Þrótti en færði sig yfir á Selfoss á miðju tímabili þar sem hann skoraði 3 mörk í 7 leikjum.

Seltirningar eru ekki ókunnir Andra en hann lék með Gróttu í 1.deildinni árið 2011 og var markahæsti leikmaður liðsins með 7 mörk.

Grótta eru nýliðar í 1.deildinni en liðið lenti í öðru sæti í 2.deildinni í fyrra. Þeir hafa verið duglegir að styrkja liðið í vetur og er Andri Björn tíundi leikmaðurinn sem kemur til liðsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.