08.03.17 - 14:30
Magnús Már Einarsson
Kristófer Eggerts til IFK Eskilstuna (Staðfest)

Kristófer Eggertsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristófer Eggertsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kristófer Eggertsson hefur fengið félagaskipti úr HK yfir í IFK Eskilstuna í Svíþjóð.
Landsliðskonan Glódís Perla Viggósdóttir er kærasta Kristófers en hún leikur með Eskilstuna United DFF í úrvalsdeild kvenna í Svíþjóð.
Kristófer er sóknarmaður en hann lék með HK og KR í yngri flokkunum.
Árið 2014 skoraði Kristófer sjö mörk í 1. deildinni með KV. Hann hjálpaði Víkingi Ólafsvík upp í Pepsi-deildina árið 2015 áður en hann gekk í raðir HK fyrir síðasta tímabil.

Í fyrra skoraði hinn 21 árs gamli Kristófer þrjú mörk í tuttugu leikjum með HK í Inkasso-deildinni.
IFK Eskilstuna leikur í fimmtu efstu deild í Svíþjóð en stærra félagið í bænum, AFC Eskilstuna, spilar í úrvalsdeildinni. Emmanuel Frimpong, fyrrum leikmaður Arsenal, gekk í raðir AFC Eskilstuna á dögunum.