Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 08. mars 2021 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Freyja Friðþjófsdóttir semur við Víking
Freyja með John Andrews, þjálfara Víkings.
Freyja með John Andrews, þjálfara Víkings.
Mynd: Getty Images
Víkingur Reykjavík hefur gert tveggja ára samning við Freyju Friðþjófsdóttur.

Freyja er uppalin í Val en hefur einnig spilað í Noregi. Hún gekk í raðir Víkings á síðasta ári og hefur núna náð samkomulagi við félagið um áframhaldandi samning.

Tilkynning Víkings:
Freyja, sem fædd er árið 2000, byrjaði ung að spila með Val og lék um tíma bæði körfu- og fótbolta fyrir Hlíðarendafélagið. Ellefu og 12 ára var hún valin körfuknattleiksleikmaður síns aldursflokks, en frá þeim tíma fór fótboltinn að taka meira til sín og titlarnir þar að tikka inn. Hún var í leikmannahópi Vals, sem varð Íslandsmeistari í 4. fl. árið 2013 og í 3. fl. þegar Valur varð meistari bæði A- og B-liða 2015. Hún varð Reykjavíkurmeistari B- og/eða A-liða öll árin frá 2013 til 2016 fyrst í 4. fl. og síðar í 3. fl. Hún varð svo bikarmeistari með 2. fl. Vals árið 2019, en þess í milli spilaði hún einnig fyrir sameiginlegt liða Vals og Knattspyrnufélags Hlíðarenda, KH.

Haustið 2019 söðlaði hún um og flutti til Noregs, þar sem hún gekk til liðs við Halsöy sem spilaði þar í 2. deild. Hún gekk svo til liðs við Víking sumarið 2020 og spilaði alls 14 leiki fyrir meistaraflokk í deild og bikar. Í vetur hafa svo bæst við tveir leikir í Reykjavíkurmótinu.
Freyja átti nánast fast sæti í byrjunarlið síðasta sumar, eða allt þar til hún meiddist í lok september. Hún hafði þá komið sterkari og sterkari inn í hvern leikinn á fætur öðrum.

Það er Víkingum mikið gleðiefni að hafa gengið frá samningi við Freyju, enda góður liðsmaður þar á ferð.
Athugasemdir
banner
banner