Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 08. mars 2021 13:00
Elvar Geir Magnússon
Herra West Ham að framlengja
Mark Noble og Declan Riche.
Mark Noble og Declan Riche.
Mynd: Getty Images
Mark Noble er nálægt því að skrifa undir nýjan eins árs samning við West Ham en þessi 33 ára miðjumaður kom upp úr unglingastarfinu hjá Hömrunum og hefur verið hjá félaginu allan aðalliðsferil sinn.

Það er ekki að ástæðulausu sem hann gengur undir gælunafninu „Herra West Ham" en hann var stuðningsmaður liðsins í æsku.

Hann er fyrirliði West Ham og rennur núgildandi samningur hans út í sumar. Hann hefur verið í hlutverki varamanns á þessu tímabili en er leiðtogi sem hefur mikil áhif á hópinn og sýnir ungum leikmönnum mikinn stuðning.

Noble lék sinn 500. leik fyrir West Ham gegn Watford en hefur aðeins byrjað þrjá deildarleiki á þessu tímabili. David Moyes hefur treyst á Declan Rice og Tomas Soucek á miðsvæðinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner