Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 08. mars 2021 13:15
Elvar Geir Magnússon
Sancho meiddur - Ekki meira með á tímabilinu?
Jadon Sancho, leikmaður Dortmund.
Jadon Sancho, leikmaður Dortmund.
Mynd: Getty Images
Jadon Sancho, leikmaður Dortmund í Þýskalandi, verður líklega frá fram í apríl vegna vöðvameiðsla í læri. Óttast er að hann gæti verið enn lengur frá og mögulega ekki spilað meira á tímabilinu.

Hann verður ekki með enska landsliðinu í landsleikjum gegn San Marínó, Albaníu og Póllandi síðar í þessum mánuði.

Þessi öflugi vængmaður hefur leikið mjög vel síðustu vikur.

Meiðslalisti Englands er áhyggjuefni fyrir Gareth Southgate landsliðsþjálfara en fyrir á listanum voru Jordan Henderson, Harvey Barnes og Jack Grealish.

Ofan á það er umræðan um að félög vilji ekki hleypa leikmönnum í landsliðsverkefni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner