Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 08. mars 2021 23:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Sölvi Snær: Heyrðum ekkert aftur í AC Milan
Það var alveg ágætis tilfinning að vinna þarna titil á fyrsta árinu í meistaraflokki
Það var alveg ágætis tilfinning að vinna þarna titil á fyrsta árinu í meistaraflokki
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ég var ekki nógu góður í fyrra, ég var að spila undir getu svo að ég var ekki nógu sáttur með mig
Ég var ekki nógu góður í fyrra, ég var að spila undir getu svo að ég var ekki nógu sáttur með mig
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í gegnum yngri flokkana var maður alltaf með það sem markmið, að spila fyrir meistaraflokk Stjörnunnar
Í gegnum yngri flokkana var maður alltaf með það sem markmið, að spila fyrir meistaraflokk Stjörnunnar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Atvinnumennskan er klárt markmið hjá mér og stefni ég á að fara út
Atvinnumennskan er klárt markmið hjá mér og stefni ég á að fara út
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Menn frá Grasshopper höfðu séð mig á móti með U17 ára landsliðinu
Menn frá Grasshopper höfðu séð mig á móti með U17 ára landsliðinu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sölvi Snær Guðbjargarson er efnilegur vængmaður hjá Stjörnunni. Hann er á leið inn í sitt fjórða tímabil með meistaraflokki þrátt fyrir að vera ekki orðinn tvítugur.

Sölvi var á dögunum valinn í æfingahóp U21 árs landsliðsins sem kom saman í síðustu viku. Fótbolti.net heyrði í Sölva og spurði hann út í Stjörnuna, Grasshopper, AC Milan og atvinnumennsku. Afraksturinn má sjá hér að neðan.

Byrjum þetta á þinni uppáhaldsstöðu á vellinum. Hver er hún?

„Ég hef verið að spila vinstri kant með Stjörnunni. Mér finnst líka mjög skemmtilegt að spila í holunni eða á miðjunni," sagði Sölvi.

Þú komst inn í meistaraflokkinn sumarið 2018, hvernig var að koma inn í hóp Stjörnunnar?

„Það var skemmtilegt að koma inn í hópinn, hópurinn tók mjög vel á móti mér og hjálpuðu strákarnir mér að komast inn í þetta hægt og rólega."

Hvernig var að taka þátt í þessu fyrsta sumri í meistaraflokki?

„Í gegnum yngri flokkana var maður alltaf með það sem markmið, að spila fyrir meistaraflokk Stjörnunnar. Svo þegar loksins kom að því þá upplifði ég góða tilfinningu. 2018 var fínt ár hjá okkur, við komumst áfram í Evrópu og fengum leik á móti FCK sem var mjög skemmtilegt og góð reynsla fyrir mig að fá að taka þátt í."

Hvernig var að taka þátt í að verða bikarmeistari? Hvernig voru fagnaðarlætin?

„Það var alveg ágætis tilfinning að vinna titil á fyrsta árinu í meistaraflokki og það gaf manni auka innspýtingu að sjá hvað þetta er skemmtilegt og hvað allir Garðbæingar voru glaðir. Eftir leikinn var fagnað vel en samt pössuðu menn sig alveg því það var stutt í næsta leik."

Þú færð fleiri mínútur á þínu öðru tímabili, spilar fleiri leiki og skorar fleiri mörk. Fannstu fyrir mikilli bætingu milli ára?

„Já, ég fann fyrir bætingu á milli ára. Ég fékk stærra hlutverk innan liðsins og fór að byrja einhverja leiki. Með því kom aukið sjálfstraust og þá fór boltinn aðeins að rúlla. Undir lok tímabilsins var ég farinn að byrja flesta leiki og náði ég að skila inn einhverjum mörkum og stoðsendingum sem hjálpaði liðinu."

Tímabilið í fyrra, 2020, hvernig meturu þína frammistöðu í fyrra? Ánægjulegt að ná Evrópusæti eða var stefnan sett hærra?

„Tímabilið í fyrra var skrýtið, það var vissulega ánægjulegt að ná Evrópusæti og má segja að árangur liðsins hafi verið fínn þótt maður vilji alltaf meira en þriðja sætið. Varðandi mína frammistöðu þá var ég ekki nógu góður í fyrra, ég var að spila undir getu svo að ég var ekki nógu sáttur með mig."

Að komandi sumri, hvert er þitt markmið fyrir tímabilið 2021?

„Fyrir tímabilið 2021 er markmiðið mitt fyrst og fremst að ná upp góðri frammistöðu í leikjunum og finna stöðugleikann sem ég þarf í minn leik. Ég vil skora mörk, leggja upp og hjálpa liðinu að vera á toppnum."

Hvernig kom það til að þú æfðir með Grasshopper á sínum tíma og hvernig gekk? Spjallaðiru eitthvað við Rúnar Má?

„Menn frá Grasshopper höfðu séð mig á móti með U17 ára landsliðinu og höfðu samband eftir mótið. Vikan hjá Grasshopper gekk bara vel og hafði félagið áhuga á að fá mig en á þeim tímapunkti vildi ég frekar spila meistaraflokks leiki með Stjörnunni svo ég ákvað að bíða aðeins með það að fara út."

„Ég hitti Rúnar Má á æfingarsvæðinu en við spjölluðum ekki um neitt sérstakt."


Svo er það AC Milan, var svekkjandi að geta ekki spilað með AC Milan? Heyrðiru eitthvað meira í þeim eftir þetta mót?

„Já, það var frekar svekkjandi í augnablikinu þegar þeir höfðu samband en um leið og við tókum ákvörðun að ég myndi ekki fara að þá hætti ég að pæla í þessu. Eftir þetta samtal að þá heyrðum við ekkert aftur í þeim."

Hefuru fengið boð um reynslu eða farið á reynslu hjá fleiri liðum en Grasshopper? Er atvinnumennskan klárt markmið hjá þér?

„Atvinnumennskan er klárt markmið hjá mér og stefni ég á að fara út. Já, ég hef fengið einhver boð um reynslu eftir Grasshopper en ég bíð samt bara rólegur eftir rétta augnablikinu og er ekki að stressa mig á einhverjum tímaramma."

Að lokum eru það tvær spurningar úr 'Hinni hliðinni'. #1 Fyrsta verk ef þú yrðir formaður KSÍ. Þú sagðir: „Breyta leiktímanum í Pepsi og hafa leikina klukkan 20:00 á föstudags og laugardagskvöldum" – Ertu enn á þessari skoðun?

„Já, ég er ennþá á þeirri skoðun. Það er ekkert meira heillandi en fótbolti og flóðljós á föstudagskvöldum."

#2 Munum við sjá þig fagna einhvern tímann með break dansi?

„Mér finnst það afar ólíklegt þar sem ég kann ekkert break dans," sagði Sölvi.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner