Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 08. mars 2023 12:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Thiago Silva ósáttur með tæklingu Bellingham - „Tíkarsonur"
Mynd: Getty Images
Thiago Silva, miðvörður Chelsea, var fjarri góðu gamni í gær þegar lið hans sló út Dortmund í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Silva var í stúkunni á leiknum og studdi við sína menn.

Hann var ekki sáttur þegar Jude Bellingham, leikmaður Dortmund, tæklaði Reece James hægri bakvörð Chelsea. Eiginkona Silva, Belle, náði viðbrögðum hans á myndband.

„Tíkarsonur! Í guðanna bænum ekki bakvörðinn minn! Rautt spjald!" sagði Silva. Tæklinginn kom seint í leiknum og leist Silva ekkert á möguleikann á meiðslum hjá James sem hefur glímt við meiðsli stóran hluta tímabilsins.

Bellingham átti ekki sinn besta dag í gær, klikkaði á tveimur mjög góðum færum og lét dómarann heyra það í viðtali eftir leik fyrir að leyfa Kai Havertz að endurtaka vítaspyrnu sína í stöðunni 1-0.

Sjá einnig:
Bellingham: Þessi endurtekning er brandari



Athugasemdir
banner
banner