Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   fim 08. apríl 2021 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Guardiola staðfestir að Delap verður færður í aðalhópinn
Mynd: Getty Images
Manchester City gæti átt í vandræðum með að fylla í skarðið sem Sergio Agüero skilur eftir sig í fremstu víglínu þegar samningur hans rennur út í sumar.

Liam Delap hefur komið við sögu í þremur keppnisleikjum með Man City og skorað eitt mark. Hann hefur verið að raða inn mörkunum með U23 liði City þar sem hann er með 20 mörk í 15 leikjum.

„Það eru margir ungir leikmenn hérna sem eru að gera mjög vel. Liam hefur verið að gera frábæra hluti og mun æfa með aðalhópnum á hverjum degi á næstu leiktíð," sagði Guardiola.

Delap er nýlega orðinn 18 ára gamall og þykir gríðarlega mikið efni. Hann hefur skorað 9 mörk í 13 keppnisleikjum með yngri landsliðum Englands.
Athugasemdir
banner
banner