FH hefur farið illa af stað í Bestu deildinni þetta sumarið. Liðið er enn án sigurs og er aðeins með eitt stig eftir fyrstu fimm umferðirnar.
Jóhannes Karl Guðjónsson tók við sem þjálfari liðsins í vetur. Á kynningarfundi þar sem Jói Kalli var kynntur var jafnframt kynnt ný stefna félagsins þar sem meðal annars var lögð áhersla á að sækja yngri leikmenn, breyttan leikstíl og hið umtalaða Goal Unit var kynnt til leiks.
Rætt var um vegferð FH í Besta spjallinu hér á Fótbolta.net í vikunni, þar sem þeir Ragnar Bragi Sveinsson og Arnór Gauti Ragnarsson voru gestir.

„Þetta er bara einhver vegferð sem er ekki að klikka. KR fór í gegnum svipað í fyrra, þá gekk lítið upp. Það er spurning hvort að menn hlaupi frá skipinu eða ekki. KR-ingar eru allavegana búnir að því.
Mér finnst skrítið að fara inn í þetta mót með þetta leikskipulag og þessa varnarlínu, ég skil það ekki. Þeir eru að fá á sig að meðaltali þrjú mörk í leik,“ sagði Arnór Gauti.
Ragnar Bragi tók því næst orðið: „Ég hef alltaf gaman að svona vegferðum. En hver vegferðin er veit maður ekki. Maður sér ekkert 'identity'. Maður sér ekki hvað þeir eru að vinna eftir. En FH-ingar verða að halda sig við þetta. Ég hef fulla trú á Jóa Kalla og Árna Guðna sem er með honum.
Það er spurning hvort að skörðin sem eru búin að höggva í séu of stór. Það sem veldur mér áhyggjum er að maður sér ekkert mynstur, maður sér ekki hvað þeir ætla að gera, hvað planið er. Það er mjög skrítið þegar þú ert í vegferð. Það fór ekkert á milli mála þegar Óskar Hrafn var að byrja þetta með KR,“ sagði Ragnar að lokum.
FH mætir Breiðabliki í kvöld á Kópavogsvelli og hefjast leikar klukkan 19:15.