Fotbolti.net
08.05.26 - 22:31
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson

Langbesta frammistaða Mosfellinga - „Ungur og efnilegur leikmaður sem á framtíðina fyrir sér”

Auglýsing
Langbesta frammistaða Mosfellinga - „Ungur og efnilegur leikmaður sem á framtíðina fyrir sér”
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin

„Mér fannst þetta ver frábær liðs frammistaða. Allir sem byrjuðu leikinn, allir sem komu inn á voru með frábæra innkomu og góð orka í okkur allan tímann. Mér fannst þetta vera mjög sanngjarn sigur" sagði Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar eftir úti sigur gegn Leikni í þriðju umferð Lengjudeildarinnar.

Lestu um leikinn: Leiknir R. 0 - 3 Afturelding

Ertu ánægður með frammistöðuna í öllum leiknum?

„Já klárlega. Kannski korters kaflinn í lok fyrri hálfleik sem þeir áttu. En mér fannst við vera miklu meira ógnandi í leiknum og hann á frábæran leik í markinu, hann Óli."

Var erfitt að brjóta niður vörn Leiknis?

„Já. Mér fannst við komast í góðar stöður og fín færi. Við áttum að vera aðeins klínískari og það kom í lokin. Virkilega ánægður með frammistöðuna í dag og mér fannst hún vera mjög sterk, liðs frammistaða. Klárlega lang besta og heilsteyptasta frammistaðan okkar á tímabilinu. 

Róbert kemur af bekknum og skorar strax, hversu mikilvægt er svona impact?

„Bara frábært. Ekki endilega bara hann heldur líka Trausti sem kemur inn á og leggur upp mark líka og Enes og Gunni og Ari koma inn á með flotta innkomu í dag. En jú frábærlega gert hjá Robba. Ungur og efnilegur leikmaður sem á framtíðina fyrir sér og gaman fyrir hann að skora sitt fyrsta deildarmark."

Fullt viðtal í spilaranum fyrir ofan

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.