SKÝRSLAN: Kalt sumarkvöld stoppaði ekki Mosfellingana
Hvað réði úrslitum?
Þetta var mikill varnarleikur og báðar varnir voru þéttar, þangað til að það opnaðist smá hjá Leikni og Afturelding skoraði, þá opnaðist leikurinn meira. Þegar vörn Aftureldingar opnaðist í eitt skipti þá tók Leiknir ekki færið sitt, þá var fyrsta markið ekki komið og líklega hefði breytt leiknum.
Bestu leikmenn
1. Bart Kooistra
Mark og stoðsending, var ógnandi flest allan leikinn. Bara fín frammistaða.
2. Axel Óskar Andrésson
Hreint lak og innköstin hans voru eins og eldflaugar inn í teig andstæðingana. Flest allar háar sendingar voru beint á mann.
Atvikið
Fyrsta mark Aftureldingar opnar leikinn alveg. Leiknir þarf þá að skora og Afturelding skorar aftur og gengur frá leiknum.
Hvað þýða úrslitin?
Afturelding er í fimmta sæti og taka á móti Njarðvík í bikarnum á miðvikudaginn. Leiknir er í sjöunda sæti og fara í Laugardalinn til þess að spila gegn Þrótti í næsta leik, mánudaginn 18. maí.
Vondur dagur
Það var enginn með neinn ,,vondan dag" þannig séð, þrátt fyrir að tapa 0-3 á heima velli þá var frammistaðan hjá Leikni fín. Veseli var í veseni með sendingarnar í fyrri hálfleik en lagaði það í seinni hálfleik.
Dómarinn - 7
Bara fínt, gerðist lítið.



