Vinicius Jr orðaður við Man City - Bayern vill Gordon - Arsenal, Liverpool og Barcelona hafa áhuga á Barcola
   fös 08. maí 2026 17:51
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Real Madrid hafði samband við umboðsmann Mourinho
Mynd: EPA
Real Madrid hefur hafið viðræður við Jose Mourinho samkvæmt heimildum TalkSport.

Hann hefur verið orðaður við endurkomu til Real Madrid en útlit er fyrir að Alvaro Arbeloa muni yfirgefa félagið eftir tímabilið.

Mourinho var ráðinn stjóri Benfica í september en hann stýrði Real Madrid frá 2010-2013. Benfica er meðvitað um samskipti spænska félagsins við Mourinho en portúgalska félagið vill gjarnan halda stjóranum.

Real Madrid hafði samband við Jorge Mendes, umboðsmann Mourinho. Mourinho er spenntur fyrir endurkomu á Santiago Bernabeu en Real Madrid þarf að borga Benfica 3 milljónir evra til að fá hann lausan.
Slapp
banner
banner