08.06.16 - 12:02
Magnús Már Einarsson
Eric Bailly til Manchester United (Staðfest)

Mynd: Manchester United

Mynd: Manchester United
Manchester United hefur keypt varnarmanninn Eric Bailly í sínar raðir frá Villarreal á Spáni.
Talið er að kaupverðið sé í kringum 30 milljónir punda.
Hinn 22 ára gamli Bailly skrifaði undir fjögurra ára samning með möguleika á tveggja ára framlengingu.

Bailly er fyrsti leikmaðurinn sem Jose Mourinho fær til Manchester United eftir að hann tók við liðinu.
„Eric er ungur varnarmaður með frábæra náttúrulega hæfileika. Honum hefur vegnað vel hingað til og hann hefur hæfileika í að verða einn sá besti,\" sagði Mourinho.
„Okkur hlakkar til að vinna með þessa hráu hæfileika og ná því besta fram. Eric er hjá réttu félagi til að halda áfram að bæta sig.\"
Bailly á eftir að fá atvinnuleyfi á Englandi en ekki er reiknað með að það verði vandamál.
Bailly hefur spilað með Villarreal í eitt og hálft ár en hann kom til félagsins frá Espanyol í janúar 2015.
Sjá einnig:
Hver er þessi Eric Bailly sem Man Utd vill fá?