08.06.20 - 18:00
Elvar Geir Magnússon
Líklegt byrjunarlið FH í sumar

Hjörtur Logi Valgarðsson og Steven Lennon.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Jónatan Ingi Jónsson.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Hjörtur Logi Valgarðsson og Steven Lennon.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Fótbolti.net spáir FH 4. sæti í Pepsi Max-deildinni í sumar. FH-ingar mæta HK í Kórnum á sunnudag í fyrstu umferð. Fótbolti.net skoðar í dag líklegt byrjunarlið FH-inga fyrir sumarið.

Færeyski landsliðsmarkvörðurinn Gunnar Nielsen er orðinn aðalmarkvörður FH á nýjan leik en Daði Freyr Arnarsson þarf að sætta sig við að verma tréverkið.
Hörður Ingi Gunnarsson er kominn frá ÍA og er ætlað að spila hægri bakvörðinn. Þórður Þorsteinn Þórðarson er á bekknum. Guðmann Þórisson og Guðmundur Kristjánsson skipa miðvarðaparið en Pétur Viðarsson tók skóna fram að nýju og veitir samkeppni. Hjörtur Logi Valgarðsson er í vinstri bakverði.
FH vill fá Emil Hallfreðsson en hans mál á Ítalíu eru ekki orðin ljós. Fyrirliðinn Björn Daníel Sverrisson á fast sæti á miðjunni og við spáum því að Baldur Sigurðsson og Daníel Hafsteinsson verði með honum á miðsvæðinu. Þórir Jóhann Helgason gerir einnig sterkt tilkall.
Frammi eru Jónatan Ingi Jónsson og Steven Lennon á vængjunum með danska sóknarmanninn Morten Beck á toppnum. Reynsluboltinn Atli Guðnason er svo tilbúinn að koma inn ef eitthvað bjátar á.
Þá eru nokkrir ungir spennandi leikmenn hjá FH sólgnir í að fá tækifæri og gætu látið ljós sitt skína í sumar.
Sjá einnig:
Spá Fótbolta.net - 4. sæti: FH

Jónatan Ingi Jónsson.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.
