08.06.20 - 11:00
Fótbolti.net
Líklegt byrjunarlið Stjörnunnar í sumar

Stjörnunni er spáð sjötta sæti í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Daníel Laxdal

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sölvi Snær Guðbjargarson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjörnunni er spáð sjötta sæti í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fótbolti.net spáir Stjörnunni 6. sæti í Pepsi Max-deildinni í sumar. Vika er í dag í fyrsta leik liðsins gegn Fylki. Fótbolti.net skoðar í dag líklegt byrjunarlið Stjörnunnar fyrir sumarið.
Haraldur Björnsson er aðalmarkvörður Stjörnunnar líkt og undanfarin ár. Vignir Jóhannesson kom frá FH í vetur og hann verður varamarkvörður.Heiðar Ægisson er hægri bakvörður númer eitt en þar er Stjarnan með nóg af mönnum. Jóhann Laxdal og Elís Rafn Björnsson geta einnig spilað í hægri bakverði sem og hinn ungi Óli Valur Ómarsson. Jósef Kristinn Jósefsson er vinstri bakvörður en Þórarinn Ingi Valdimarsson er að jafna sig eftir erfið meiðsli á hné. Þórarinn mun líklega snúa aftur á völlinn í sumar.
Daníel Laxdal og Brynjar Gauti Guðjónsson verða líklega miðverðir en Martin Rauschenberg og Björn Berg Bryde eru einnig að berjast um stöðuna. Rauschenberg gæti spilað við hlið Brynjars og Daníel farið á miðjuna í einhverjum leikjum.
Á miðjunni er fyrirliðinn Alex Þór Hauksson og reynsluboltinn Eyjólfur Héðinsson. Þorri Geir Rúnarsson er einnig að berjast um stöðu þar. Fremst á miðjunni verður líklega lykilmaðurinn Hilmar Árni Halldórsson en hann getur einnig spilað á vinstri kanti. Halldór Orri Björnsson kom aftur frá FH í vetur og þar er annar leikmaður sem getur spilað bæði á miðju og kanti. Tristan Freyr Ingólfsson er einnig ungur og spennandi leikmaður.
Þorsteinn Már Ragnarsson og Ævar Ingi Jóhannesson eru að berjast um stöðu á hægri kantinum. Sölvi Snær Guðbjargarson er spennandi leikmaður á vinstri kanti. Frammi er Guðjón Baldvinsson á sínum stað en Emil Atlason mun veita honum samkeppni. Kristófer Konráðsson bættist í hópinn á dögunum og hann getur spilað allar fremstu stöðurnar.
Sjá einnig:
Spá Fótbolta.net - 6. sæti Stjarnan

Daníel Laxdal

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sölvi Snær Guðbjargarson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
