Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mið 08. júní 2022 14:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Verður lausnin að Lukaku fari á láni til Inter?
Mynd: Getty Images
Greint er frá því á Sky Sports að Inter Milan sé í viðræðum við Chelsea um að fá Romelu Lukaku á láni til félagsins.

Lukaku varð ítalskur meistari með Inter í fyrra en var svo seldur á metupphæð til Chelsea síðasta sumar.

Þar gengu hlutirnir ekki alveg upp fyrir belgíska framherjann og vill hann fara frá enska félaginu.

Í grein Sky Sports segir að Chelsea verði að sjá fjárhagslegan ágóða í því að hleypa Lukaku til Ítalíu svo samningar náist.

Sjá einnig:
Lukaku reynir allt til að komast aftur til Inter
Athugasemdir
banner
banner
banner