Thomas Tuchel segir Jude Bellingham verða berjast um sæti í byrjunarliðinu á HM þar sem sá fyrrnefndi telur England vera með fimmtán mögulega byrjunarliðsmenn í hópnum.
Bellingham hefur einungis verið fjórum sinnum í byrjunarliði Englands frá því að sá þýski tók við. Þá hefur hann þrisvar komið inn af bekknum.
Bellingham hefur einungis verið fjórum sinnum í byrjunarliði Englands frá því að sá þýski tók við. Þá hefur hann þrisvar komið inn af bekknum.
Morgan Rogers, leikmaður Aston Villa, hefur aftur á móti verið í stærra hlutverki og hefur hann komið við sögu í tólf af þrettán leikjum undir Tuchel.
„Já, hann (Bellingham) verður að berjast um sæti. Hann er einn af byrjunarliðsmönnunum, hann veit að hann er einn af byrjunarliðsmönnunum, en við erum með 14 eða 15 mögulega byrjunarliðsmenn.“
„Þessi hlutverk geta alltaf breyst, en í augnablikinu held ég að við séum með 14 eða 15 alvöru byrjunarliðsmenn og Jude er einn þeirra,“ sagði Tuchel á dögunum.



