Landsliðsmaðurinn Hákon Arnar Haraldsson er ánægður með nýafstaðið tímabil í Frakklandi þar sem hann leikur með Lille.
Liðið tryggði sér í Meistaradeildina og skoraði Hákon níu mörk í öllum keppnum.
Hann er nú staddur í Auburn í Alabama fylki í Bandaríkjunum þar sem landsliðið mætir Argentínu í vináttulandsleik á miðvikudaginn. Atli Arason, fréttaritari Fótbolta.net, ræddi þar við Hákon og spurði hann út í gengið í Frakklandi.

„Persónulega fannst mér það mjög gott, við förum beint í Meistaradeildina þannig ég er mjög sáttur. Ég skora níu mörk og á nokkrar stoðsendingar þannig ég er líka sáttur með mínar frammistöður.“
Hákon skrifaði fyrr á árinu undir samning sem gildir til ársins 2030. „Ég er mjög sáttur þarna, þetta er félag sem berst um titla og alltaf í Evrópu. Þannig ég spila mikið af leikjum á hverju tímabili og næ alltaf að bæta mig. Ég er mjög sáttur í Frakklandi.“
Hákon er eftirsóttur og hefur verið orðaður við hin ýmsu lið. Hann var spurður um hvernig það væri að sjá nafnið sitt orðað við stórlið í Evrópu.
„Það gefur manni alveg sjá sjálfstrausts-boost. Ég spái því voðalega lítið á miðju tímabili. Það þarf mikið að gerast til að maður fari eitthvert annað.“