Víkingur hefur tilkynnt Ögmund Kristinsson sem nýjan leikmann félagsins. Ögmundur skrifar undir samning við Víking sem gildir út þetta ár. Hann kemur í neyðarskiptum frá Val, en Víkingur fær undanþágu þar sem Aron Snær Friðriksson var eini leikhæfi markvörðurinn í leikmannahópi liðsins.
Í tilkynningu Víkings er vakin athygli á því að allir þrír markverðirnir sem valdir voru í lokahóp Íslands á EM 2016 eru nú skráðir í Víking. Það eru þeir Ingvar Jónsson, Hannes Þór Halldórsson og Ögmundur.

„Ögmundur hefur gengið til liðs við Víking til að hjálpa okkur í þeim gríðarlega mikilvægu verkefnum sem félagið er í þar sem stefnt er að vinna allt sem er í boði og fara langt í Evrópu og mun hann veita Aroni Snæ nauðsynlega samkeppni um sæti í byrjunarliðinu. Hann er vandaður drengur og frábær markmaður eins er hann mjög góður í hóp sem er okkur mjög mikilvægt hjá Víkingi," segir Kári Árnason, yfirmaður fótboltamála, um komu Ögmundar.
Ögmundur fær treyju númer 47 hjá Víkingi og er kominn með leikheimild. Næsti leikur liðsins er gegn ÍA á útivelli á föstudag í Mjólkurbikarnum og í kjölfarið er svo toppslagur í Bestu deildinni gegn KR.