Akureyringurinn og Þórsarinn Aron Elvar Finnsson er ekki ánægður með aganefnd Bestu deildarinnar þegar kemur að því að úrskurða um lengd leikbanna.
Hann furðar sig á því að Christian Jakobsen hafi fengið tveggja leikja bann eftir að hafa litið beint rautt spjald í tapi gegn Stjörnunni um síðustu mánaðamót. Þór tapaði 1-3 á heimavelli en staðan var 1-2 þegar Christian 'Greko' var rekinn af velli.
Christian var úrskurðaður í tveggja leikja bann af aganefnd KSÍ og er Aron Elvar ekki sáttur.
Hann bendir á atvik úr sama leik á Þórsvelli þegar Guðmundur Kristjánsson, leikmaður Stjörnunnar, virtist hreinlega ráðast á leikmann Þórs en slapp með gult spjald. Atvikið má sjá hér fyrir neðan.
Aron spyr sig hvort íslenskir leikmenn fái sérstaka meðhöndlun hjá dómurum í ljósi þess að 7 af 8 leikmönnum sem hafa verið dæmdir í tveggja leikja bann eftir rautt spjald á Bestudeildartímabilinu eru af erlendu bergi brotnir.
„Gummi Kristjáns fékk einn leik fyrir Mike Tyson högg 2024 en Greko fær tvo núna fyrir brot sem sést reglulega á fótboltavelli (alltaf rautt samt svo það komi fram). Vantar samræmi eða skipta nöfn leikmanna bara svona miklu máli í þessum ákvörðunum KSÍ?" spyr Aron Elvar á Twitter.
„Sami leikur, miklu ljótara brot. Gummi Kri slapp. 8 leikmenn hafa verið dæmdir í 2 leikja bann eftir rautt spjald á tímabilinu, 7 af þeim erlendir. Tilviljun?"
Sami leikur, miklu ljótara brot. Gummi Kri slapp. 8 leikmenn hafa verið dæmdir í 2 leikja bann eftir rautt spjald á tímabilinu, 7 af þeim erlendir. Tilviljun? https://t.co/p6PmRgcE8N pic.twitter.com/nHJlftN1jg
— Aron Elvar Finnsson (@AronElvar97) June 8, 2026


