Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 08. júní 2026 19:47
Elvar Geir Magnússon
Timber farinn heim og verður ekki með á HM
Mynd: EPA
Jurrien Timber, varnarmaður Arsenal, verður ekki með hollenska landsliðinu á HM vegna meiðsla í nára. Timber hafði verið frá vegna meiðsla síðan í mars en kom inn sem varamaður í seinni hálfleik í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í Búdapest þann 30. maí.

Hann kom af bekknum á 66. mínútu en síðasti leikur hans fyrir þann leik var gegn Everton þann 14. mars. Fyrir úrslitaleikinn sagði Mikel Arteta að Timber væri leikfær.

Hollenska sambandið gaf það út í dag að Timber væri ekki búinn að jafna sig nægilega mikið og eftir að hafa ráðfært sig við sjúkrateymið hafi þjálfararnir tekið þá ákvörðun að taka Timber út úr leikmannahópnum.

Timber á 23 landsleiki fyrir Holland og lék sinn fyrsta landsleik í júní 2021.

Ronald Koeman landsliðsþjálfari Hollands hefur kallað hinn 25 ára gamla Lutsharel Geertruida upp í hópinn en hann var á láni hjá Sunderland frá RB Leipzig á síðasta tímabili.

Holland verður í F-riðli á HM. Liðið mætir Japan þann 14. júní og leikur svo gegn Svíþjóð og Túnis.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner
banner