08.07.21 - 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Liverpool selur Liam Millar til Basel (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Liverpool hefur staðfest söluna á Liam Millar til svissneska félagsins FC Basel.
Millar er kanadískur landsliðsmaður sem gekk í raðir Liverpool árið 2016 og var á sínum tíma fyrirliði varaliðsins (U23).
Millar lék einn aðalliðsleik fyrir Liverpool þegar hann lék í sigri á Shrewsbury í enska bikarnum fyrir einu og hálfu ári síðan.

Millar var á láni hjá Kilmarnock og Charlton síðasta tímabil. Hann er 21 árs sóknarmaður.
Kaupverðið er um 1,3 milljónir punda og Liverpool fær einnig 20% af næstu sölu á Millar.