Fotbolti.net
08.07.26 - 16:00
Kári Snorrason

Hallgrímur á hælum Hödda Magg

Fagnar seinna marki sínu gegn Víkingi.

Fagnar seinna marki sínu gegn Víkingi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hallgrímur Mar Steingrímsson er einn í 11. sætinu yfir markahæstu leikmenn í sögu efstu deildar karla eftir tvö glæsileg mörk fyrir KA gegn Víkingi síðastliðinn fimmtudag.

Þessi frétt er hluti af umfjöllun Víðis Sigurðssonar sem birtist 6. júlí á áskriftarvef Fótbolti.net. Umfjöllunin er í heild sinni hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.

Hægt er að nálgast allar upplýsingar um áskriftarleiðina hér.
Víðir Sig: 13. umferð Bestu deildar - Fræknir feðgar, fjórir Ögmundar og Hödda Magg ógnað
TENGT EFNI

Víðir Sig: 13. umferð Bestu deildar - Fræknir feðgar, fjórir Ögmundar og Hödda Magg ógnað

Hallgrímur er kominn með 85 mörk og fór fram úr Björgólfi Takefusa og Ragnari Margeirssyni eftir að hafa deilt 11.-13. sæti með þeim í skamman tíma.

Fyrra mark Hallgríms var hans 80. fyrir KA í efstu deild og hann er bæði marka- og leikjahæstur KA-manna í efstu deild frá upphafi.

Nú er hann aðeins tveimur mörkum á eftir Herði Magnússyni, FH-ingnum gamalkunna sem þessa dagana lýsir leikjum á heimsmeistaramótinu fyrir RÚV, en Hörður er tíundi markahæstur frá upphafi með 87 mörk.

Þessir eru markahæstir í heild af þeim sem hafa leikið í Bestu deildinni á þessu ári, sæti þeirra á markalista deildarinnar er fyrir framan:

11. Hallgrímur Mar Steingrímsson - 85
18. Emil Atlason - 74
19. Tryggvi Hrafn Haraldsson - 73
29. Nikolaj Hansen - 66
38-42. Andri Rúnar Bjarnason - 60
38-42. Kristinn Steindórsson - 60
Tíundi markahæsti leikmaður efstu deildar frá upphafi.

Tíundi markahæsti leikmaður efstu deildar frá upphafi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Emil skorað 74 mörk í efstu deild, næst mest af spilandi leikmönnum.

Emil skorað 74 mörk í efstu deild, næst mest af spilandi leikmönnum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.