Fotbolti.net
08.07.26 - 14:12
Haraldur Örn Haraldsson

Gummi Kri spenntur að mæta aftur Kaj Leo - „Ég kannski slæda í dm's í kvöld"

Auglýsing
Gummi Kri spenntur að mæta aftur Kaj Leo - „Ég kannski slæda í dm's í kvöld"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðmundur Kristjánsson leikmaður Stjörnunnar sat fyrir svörum á blaðamannafundi í dag. Stjarnan á leik gegn færeyska liðinu Víking Götu á morgun í fyrstu umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar á morgun.

„Þetta leggst mjög vel í okkur, við áttum feykilega góða æfingu núna. Menn virkuðu mjög beittir, ég hef aldrei komið til Færeyja, þannig það verður skemmtileg reynsla. Gaman að máta sig á móti þeim, og þetta er einvígi sem við eigum að eiga góðan séns í að fara áfram úr. Þannig þetta leggst bara mjög vel í mig," sagði Guðmundur.

Stjörnumenn hafa nýtt síðustu daga til að skoða andstæðinginn, og Guðmundur var með nokkra punkta um hvernig þeir spila.

„Við höfum horft á þá bæði sóknarlega og varnarlega. Sóknarlega reyna þeir að koma bakvörðunum sínum hátt upp og koma með fyrirgjafir. Varnarlega er þetta svipað og maður hefur oft séð. Þetta er bara þokkalega vel þjálfað lið og rútinerað, við þurfum bara að eiga góðan dag, og þá förum við áfram," sagði Guðmundur.

Íslenska deildin er ofar á styrkleikalista UEFA en sú færeyska og samkvæmt því ætti Stjarnan að eiga ágætan möguleika.

„Ég svo sem veit ekki hvernig stuðlarnir eru á þessu. Það er alveg klárt að við ætlum okkur áfram. Hvernig styrkleikinn nákvæmlega er, kemur í ljós en það er klárt að við á okkar heimavelli ætlum okkur sigur. Annað væri vonbrigði," sagði Guðmundur.

Það eru Íslands tengingar í færeyska liðinu þar sem bæði eldri bróðir Gunnars Vatnhamars leikmann Víkings Reykjavíkur, hann Sölvi Vatnhamar spilar fyrir þá. Einnig mætir Kaj Leo í Bartalsstovu aftur til landsins, en hann spilaði lengi í íslensku deildunum.

„Ég þekki nú ekki bróðir hans Gunnars, en eflaust fínn drengur. Kaj Leo hef ég spilað við og þekki vel. Hann vill komast inn á vinstri fótinn og skapa eitthvað þannig. Það eru alltaf einhverjar tengingar til Færeyja þannig það er alltaf skemmtilegt," sagði Guðmundur.

Guðmundur segist nú ekki enn vera búinn að heyra í Kaj, en það gæti breyst.

„Ég þekki hann nú ekki neitt, hef bara spilað á móti honum. Það eru kannski einhverjir í liðinu sem spiluðu með honum í Val eða hjá ÍA. Ég kannski 'slæda í dms' í kvöld og sé hvað hann segir," sagði Guðmundur og hló.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.