Fotbolti.net
08.07.26 - 13:54
Haraldur Örn Haraldsson

Jón Þór býst við hörkuleik: Færeyingar hafa verið á mjög mikilli uppleið

Auglýsing
Jón Þór býst við hörkuleik: Færeyingar hafa verið á mjög mikilli uppleið
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjarnan kallaði til blaðamannafundar fyrir leik þeirra gegn færeyska liðinu Víking frá Götu í fyrsu umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar á morgun. Jón Þór Hauksson þjálfari liðsins var þar mættur til að standa fyrir svörum.

„Þetta leggst ljómandi vel í okkur, við erum spenntir og það er mikil tilhlökkun að taka þátt í Evrópukeppni. Það eru mikil forréttindi fyrir knattspyrnumenn að taka þátt í slíkum verkefnum. Það býr mikil reynsla í klúbbnum að taka þátt í slíkum verkefnum. Þannig að fagmennskan varðandi þau verkefni er allt upp á tíu. Þannig við getum einbeitt okkur að þessum leikjum, og mikil spenna og tilhlökkun," sagði Jón.

Færeysku Víkingarnir eru í 4. sæti deildarinnar heima fyrir og Jón segist að það megi búast við hörku leik.

„Þetta er hörku lið og þeir eru vel þjálfaðir og vinnusamir, orkumiklir, líkamlega sterkir og spila góðan fótbolta. Þannig að við fáum verðugt verkefni í þessum tveimur leikjum, en á móti kemur að það eru tækifæri og möguleikar í öllu. Við þurfum að nýta okkur þá möguleika vel, og eiga toppleik hérna á morgun, og ná góðum úrslitum áður en við förum út til Færeyja," sagði Jón.

Það eru ekki mörg lönd sem við íslendingar teljum okkur vera stærri en, en Færeyjar er nú eitt af þeim. Færeyskum fótboltaliðum hefur hins vegar gengið mjög vel síðustu ár og slegið út mun stærri lið.

„Færeyingarnir hafa verið á mjög mikilli uppleið í frekar langan tíma. Ég held að staðan sé þannig að þeir eru 'rankaðir' hærra en íslenska deildin í dag. Það eru engar tilviljanir í fótbolta, þannig að það er staðan. Við þurfum að breyta því til baka ef við teljum okkur vera betri en þeir. Þannig við fáum tækifæri til þess núna í tveimur leikjum og ætlum okkur góða hluti úr því. Það er engin spurning," sagði Jón.

Færeyingar eru reyndar í 40. sæti styrkleikalista FIFA á meðan Besta deildin er í 31. sæti, en það tekur ekki frá punktinum að þeim hefur gengið vel í Evrópu síðustu ár.

Ibrahim Turay leikmaður Stjörnunnar hefur verið að eiga við meiðsli og verður ekki með í leiknum á morgun.

„Við eigum von á því að hann komi seinna í júlí til baka úr þeim meiðslum. Hann er svo sem bara í sinni endurhæfingu, og lítið að frétta af því. Það gengur allt á áætlun og ætti að koma seinni partinn í júlí til baka inn á völlinn," sagði Jón.

Alex Þór Hauksson hefur komið inn af bekknum í síðustu tveimur leikjum en hann hafði verið frá vegna meiðsla lengi fyrir það.

„Það er geysilega mikilvægt (að fá hann til baka), og allir sem þekkja þann góða dreng vita að hann kemur með mikla og góða orku inn í liðið. Fyrir utan þau gæði sem hann býr yfir sem knattspyrnumaður, það er bara algjörlega frábært að fá hann til baka. Ekki nokkur spurning, hann hefur gríðarlega góð áhrif á umhverfið allt. Allt liðið og allt í kringum klúbbinn, hefur mjög jákvæða þýðingu fyrir allt í kringum Stjörnuna," sagði Jón.

Að lokum var Jón spurður um sögusagnir af því að Stjarnan hefur áhuga á að fá Árna Vilhjálmsson og Ara Leifsson til liðsins, en sagði að það er ekkert að frétta eins og er af því.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.