08.08.23 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Frítt inn fyrir þau sem mæta í bláu í kvöld


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Framarar frumsýna nýtt þjálfarateymi í dag en Ragnar Sigurðsson og Aðalsteinn Aðalsteinsson hafa tekið við liðinu, tímabundið að minnsta kosti, eftir að Jón Sveinsson var látinn fara.
Framarar hafa ákveðið að slá upp hátíð í Úlfarsárdalnum fyrir leikinn í kvöld þegar nágrannar þeirra í Fylki koma í heimsókn.
Svæðið opnar klukkan 18:00 og frítt verður inn fyrir öll sem mæta í bláu í boði Kemi.
Þá verða glóðarsteiktu borgararnir á sínum stað og kaldur á krana.
Leikurinn sjálfur hefst svo klukkan 19:15.
þriðjudagur 8. ágúst
19:15 Fram - Fylkir
