08.08.26 - 18:33
Jóhann Þór Hólmgrímsson
2. deild: Hvíti riddarinn lagði Magna - Slysalegt jöfnunarmark á Dalvík

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
Hvíti riddarinn lagði Magna af velli í Mosfellsbæ í dag. Eina mark leiksins skoraði Alexander Aron Tómasson með skoti úr teignum snemma leiks.
Magnamenn reyndu hvað þeir gátu að jafna metin undir lokin en 1-0 sigur Hvíta riddarans staðreynd.
Magnamenn reyndu hvað þeir gátu að jafna metin undir lokin en 1-0 sigur Hvíta riddarans staðreynd.

TENGT EFNI
2. deild: Hádramatísk endurkoma hjá Haukum - Þægilegt hjá Fjölni
Hvíti riddarinn er í 5. sæti með 24 stig en Magni er í 8. sæti með 18 stig.
Dalvík/Reynir og Kári skildu jöfn á Dalvík í nokkuð öflugri norðanátt. Staðan var markalaus í hálfleik en gestirnir komust yfir þegar Finnbogi Laxdal Aðalgeirsson skoraði með skoti vinstra megin úr teignum í fjærhornið.
Þegar um stundarfjórðungur var til loka venjulegs leiktíma fékk Dalvík/Reynir aukaspyrnu vel fyrir utan teiginn, úti á vinstri kanti. Aires Rodrigo Da Encarnacao Sousa tók skotið og skoraði yfir Loga Mar Hjaltested í marki Kára sem veit að hann hefði átt að gera betur.
Káramenn vildu fá vítaspyrnu þegar skammt var til loka leiksins en ekkert dæmt.
Kári er í 3. sæti með 26 stig en Dalvík/Reynir er í 7. sæti með 21 stig.
Hvíti riddarinn 1 - 0 Magni
1-0 Alexander Aron Tómasson ('6 )
Dalvík/Reynir 1 - 1 Kári
0-1 Finnbogi Laxdal Aðalgeirsson ('52 )
1-1 Aires Rodrigo Da Encarnacao Sousa ('74 )

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Haukar | 22 | +23 | 47 |
| 2 | Selfoss | 22 | +19 | 45 |
| 3 | Kári | 22 | +27 | 42 |
| 4 | Dalvík/Reynir | 22 | 0 | 31 |
| 5 | Víkingur Ó. | 22 | -8 | 31 |
| 6 | Fjölnir | 22 | +3 | 30 |
| 7 | KFA | 22 | +6 | 29 |
| 8 | Kormákur/Hvöt | 22 | +4 | 27 |
| 9 | Magni | 22 | -19 | 25 |
| 10 | Þróttur V. | 22 | -9 | 23 |
| 11 | KFG | 22 | -20 | 22 |
| 12 | Hvíti riddarinn | 22 | -26 | 17 |