Fotbolti.net
08.08.26 - 18:08
Alexander Tonini

Oumar Diouck: Loksins 100% eftir tveggja mánaða fjarveru

Auglýsing
Oumar Diouck skoraði tvennu gegn Vestra og gerði út um leikinn

Oumar Diouck skoraði tvennu gegn Vestra og gerði út um leikinn

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Oumar Diouck leikmaður Njarðvíkur gerði gæfumuninn fyrir sitt lið þegar hann skoraði síðustu tvö mörkin í leiknum sem á endanum skilaði sér í 3-1 sigri síns liðs.

Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en í þeim seinni tók Njarðvík yfir leikinn.

„Við byrjum mjög illa en við héldum samt áfram að berjast sem lið eins og undanfarnar vikur. Okkur tókst að skora rétt fyrir hálfleik og svo í þeim seinni keyrðum við bara á stigin þrjú eins og alltaf.“
Lestu um leikinn: Njarðvík 3 - 1 Vestri
Njarðvíkingar eru á mikilli siglingu og hafa unnið 5 af síðustu 6 leikjum í deildinni. Finnst Oumari liðið vera að spila sinn besta fótbolta núna?

„Já það eru allir að sinna sínu hlutverki í liðinu bæði leikmenn og þjálfarar. Við erum að leggja mikið á okkur til að ná því og nú þurfa allir að halda haus fyrir þessa 5 leiki sem eftir eru og reyna að vinna þá alla.“

Finns þér eins og þú sért líka að spila þinn besta fótbolta núna?

„Ég var meiddur í tvo mánuði og núna loksins líður mér eins og sé 100% og tilbúinn til að hjálpa liðinu. Auðvitað er gott fyrir sjálfstraustið að skora og ég mun halda áfram".
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.