08.09.26 - 16:45
Elvar Geir Magnússon
Haaland varð fullmótaður með föðurhlutverkinu

Erling Haaland.

Mynd: EPA

Erling Haaland.

Mynd: EPA
Enzo Maresca, stjóri Manchester City, segir að Erling Haaland hafi orðið „fullmótaður“ og forgangsröðun hans breyst eftir að hann eignaðist son fyrir tveimur árum.
„Hann er orðinn maður núna. Þegar hann kom hingað sumarið 2022 var hann ekki pabbi en er það núna og líf hans hefur breyst. Hann hefur alltaf verið frábær leikmaður en nú er hann fullmótaður. Hann er fjölskyldumaður en heldur áfram að skora mörk," segir Maresca.

TENGT EFNI
Meistaradeildin í dag - Veislan er að byrja
City er að fara að mæta Porto í Meistaradeildinni í kvöld. Haaland hefur spilað allar keppnismínútur City á þessu tímabili og Maresca segir að á einhverjum tímapunkti verði hann hvíldur. Haaland var hluti af norska landsliðinu sem komst í 8-liða úrslit HM.
„Þetta er ekki auðvelt fyrir Erling eða einhvern af leikmönnunum sem spiluðu á HM. Það er eðlilegt að við sjáum þessa leikmenn byrja að þreytast. Það er því rétt að gefa þeim hvíld. Það gæti verið einn leikur eða ein vika í frí."