Fotbolti.net
08.09.26 - 19:00
Ívan Guðjón Baldursson

Willum lagði upp gegn Ágústi Orra

Willum lagði upp gegn Ágústi Orra
Canon

Mynd: NEC Nijmegen

NEC Nijmegen 2 - 2 Excelsior
1-0 Adam Tahaui ('10)
1-1 David Garden ('43)
1-2 Valentin Sulzbacher ('73)
2-2 Noe Lebreton ('92)
Íslendingaliðið tapaði niður þriggja marka forystu í leik sem lauk þremur dögum eftir að hann hófst
TENGT EFNI

Íslendingaliðið tapaði niður þriggja marka forystu í leik sem lauk þremur dögum eftir að hann hófst

Willum Þór Willumsson var í byrjunarliði NEC Nijmegen sem tók á móti Excelsior í efstu deild hollenska boltans í dag. Ágúst Orri Þorsteinsson var í byrjunarliði Excelsior.

Willum lagði fyrsta mark leiksins upp fyrir Adam Tahaui á tíundu mínútu en gestirnir svöruðu með jöfnunarmarki fyrir leikhlé, svo staðan var 1-1.

Staðan hélst áfram jöfn í nokkuð jöfnum slag allt þar til Valentin Sulzbacher kom inn af bekknum og náði forystunni fyrir gestina.

Excelsior hélt forystunni í tæpar 20 mínútur, eða allt þar til Noe Lebreton jafnaði metin í uppbótartíma. Lokatölur 2-2.

Nijmegen er með 7 stig eftir 5 fyrstu umferðir deildartímabilsins, þremur stigum minna heldur en Excelsior sem hefur farið vel af stað.
Willum lagði upp gegn Ágústi Orra
Canon

Mynd: Excelsior

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.